Allt er mögulegt í fótboltanum

Wijnaldum var ánægður þegar hann skrifaði undir í dag.
Wijnaldum var ánægður þegar hann skrifaði undir í dag. Ljósmynd/Liverpoolfc.com

Miðjumaðurinn Georginio Wijnaldum vonast til að skrifa nafn sitt í sögubækurnar hjá Liverpool en hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið í dag.

Liverpool keypti hann frá Newcastle, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni í vor. „Allt er mögulegt í fótboltanum. Það er hægt að líta á Leicester, þeir urðu meistarar,“ sagði Wijnaldum eftir að hann skrifaði undir hjá Liverpool í dag.

„Saga Liverpool er frábær en þú vilt einnig skapa söguna og vera hluti af henni. Það vil ég. Ég kem hingað til að vinna hluti og ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að það takist,“ bætti Wijnaldum við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert