Staðarblaðið Liverpool Echo greinir frá því að Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hafi spurst fyrir um Max Meyer sem spilar með Schalke í Þýskalandi. Talið er að um 28 milljónir punda þurfi til að þýska félagsliðið leyfi leikmanninum að fara.
Max Meyer er tvítugur framliggjandi miðjumaður sem nú þegar spilað 95 leiki fyrir Schalke og skorað í þeim 16 mörk. Hann er samningsbundinn félaginu til 2018.
Klopp var við stjórnvölinn hjá þýska félagsliðinu Dortmund í 7 ár og þekkir þýsku deildina eins og handabakið á sér. Liverpol keypti á dögunum varnarmanninn Joël Matip frá Schalke.