Þetta gerist á hverju ári

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, sagði að leikmenn Dortmund væru komnir lengra í undirbúningi sínum fyrir komandi keppnistímabil. Það væri helsta ástæða 4:1-taps United gegn Dortmund í æfingaleik í dag.

„Á undirbúningstímabilinu lítur það lið sem er komið lengra í sínum undirbúningi alltaf betur út. Svona hlutir gerast á hverju ári,“ sagði Mourinho eftir leikinn sem fór fram í Kína.

„Það var auðvelt að sjá mun á snerpu og ákafa liðanna og þetta var erfitt fyrir okkur. Mér fannst við hins vegar leika betur í seinni hálfleik,“ bætti Mourinho við.

United mætir grönnum sínum í Manchester City á mánudag, en leik­irn­ir eru hluti af æf­inga­móti sem haldið er ár­lega í Shang­hai. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert