Wijnaldum staðfestur til Liverpool

Wijnaldum að skrifa undir samninginn í dag.
Wijnaldum að skrifa undir samninginn í dag. Ljósmynd/Liverpoolfc.com

Liverpool hefur keypt hollenska miðjumanninn Georginio Wijnaldum frá Newcastle. Wijnaldum kláraði læknisskoðun í dag og er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Liverpool í sumar. 

Wijnaldum er 25 ára gamall og hefur leikið 30 landsleiki með hollenska landsliðinu. Hann var keyptur til Newcastle fyrir um ári og átti gott tímabil þar sem hann skoraði 11 mörk og lagði upp 5 í 38 deildarleikjum. Talið er að kaupverðið sé í kringum 25 milljónir punda.

Í sumar hefur Liverpool þegar keypt vængmannin Sadio Mane frá Southampton á 34 milljónir punda, varnarmanninn Joël Matip frá Schalke á frjálsri sölu, markmanninn Loris Karius frá Mainz  og eistneska varnarmanninn Ragnar Klavan frá Augsburg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert