Fer ekki til Liverpool

Max Meyer í leik með Schalke.
Max Meyer í leik með Schalke. AFP

Christian Heidel, framkvæmdastjóri Schalke í Þýskalandi, segir ekkert hæft í þeim fregnum að Max Meyer, leikmaður félagsins, sé á leið til enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool.

Schalke gæti misst Leroy Sane, landsliðsmann Þýskalands, á allra næstu dögum, en hann hefur verið sterklega orðaður við Manchester City.

Þá hefur Liverpool verið á höttunum eftir Meyer sem leikur með U21 árs landsliði Þýskalands en Heidel segir hann ekki á leið til Liverpool.

„Max er frábær leikmaður en það er kjaftæði að hann sé á leið til Liverpool. Ég þekki Klopp ágætlega og ég talaði við hann fyrir nokkrum dögum. Hann hefði alveg pottþétt nefnt Meyer á nafn ef hann væri áhugasamur um að fá hann,“ sagði Heidel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert