Mætti of seint á fyrsta vinnudegi

Sam Allardyce.
Sam Allardyce. AFP

Sam Allardyce, nýráðinn þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu, var kynntur fyrir fjölmiðlum á St. George's Park-æfingasvæðinu í dag, en hann var of seinn fyrsta daginn í nýrri vinnu.

Roy Hodgson lét af störfum sem þjálfari enska landsliðsins eftir að liðið tapaði fyrir Íslandi í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í sumar.

Allardyce tók við liðinu á dögunum en hann var í dag kynntur fyrir fjölmiðlum á æfingasvæði landsliðsins.

Allardyce mætti of seint en hann kenndi umferðinni um. Hann bjóst einfaldlega ekki við mikilli umferð en fjölmiðlar og starfsfólk svæðisins tók þó vel í það. Hægt er að sjá stiklu af kynningunni hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert