Klopp áfjáður í Evrópumeistara

Joao Mário í baráttu við Jóhann Berg Guðmundsson á EM …
Joao Mário í baráttu við Jóhann Berg Guðmundsson á EM 2016. AFP

Eins og greint var frá á mbl.is í vikunni hefur Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, mikinn áhuga á að fá portúgalska miðvallarleikmanninn Joao Mário til liðs við félagið.

Sporting Lisbon hafnaði nýverið um það bil 30 milljóna punda tilboði í Evrópumeistarann nýkrýnda, en Liverpool hefur hækkað tilboð sitt í 35 milljónir punda. 

Liverpool seldi velska miðavallarleikmanninn Joe Allen til Stoke City á dögunum og Klopp leitar nú logandi ljósi að leikmanni til þess að styrkja miðsvæðið hjá liðinu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert