Stórsigur Liverpool gegn Barcelona

Sadio Mane fagnar marki sínu fyrir Liverpool gegn Barcelona í …
Sadio Mane fagnar marki sínu fyrir Liverpool gegn Barcelona í dag. AFP

Liverpool vann glæsilegan 4:0 sigur þegar liðið mætti Barcelona í æfingaleik í knattspyrnu karla á Wembley í dag. Sadio Mane, Divock Origi og Marko Grujic skoruðu sitt markið hver fyrir Liverpool. Þá varð Javier Mascherano, fyrrum leikmaður Liverpool, fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Liverpool er í óða önn að undirbúa sig fyrir fyrsta leik sinn í ensku úrvalsdeildinni, en liðið mætir Arsenal á Emirates í fyrstu umferð deildarinnar á sunnudaginn um næstu helgi. Barcelona leikur hins vegar sinn fyrsta leik í spænsku efstu deildinni gegn Real Betis laugardaginn 20. ágúst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert