Íslendingarnir varamenn

Gylfi Þór Sigurðsson fékk hvíld hjá Swansea í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson fékk hvíld hjá Swansea í kvöld. AFP

Íslensku landsliðsmennirnir Gylfi Þór Sigurðsson, Jón Daði Böðvarsson og Hörður Björgvin Magnússon voru varamenn hjá sínum liðum í ensku deildabikarkeppninni í kvöld. 

Jón Daði kom inn á sem varamaður á 69. mínútu þegar Wolves sigraði Cambridge á heimavelli 2:1. 

Gylfi sat allan tímann á bekknum hjá Swansea en liðið vann 3:1 útisigur á Peterborough. 

Hörður kom ekki heldur við sögu hjá Bristol City en liðið gerði 1:1 jafntefli við Scunthorpe á útivelli. 

Liverpool vann Burton Albion 5:0 á útivelli og skoraði Daniel Sturridge tvívegis. Chelsea spilaði einnig í kvöld og vann Bristol Rovers 3:2 á heimavelli. Michy Batshuayi skoraði tvívegis fyrir Chelsea. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert