Markvarðahringekja að fara af stað

Claudio Bravo er á leiðinni í herbúðir Manchester City.
Claudio Bravo er á leiðinni í herbúðir Manchester City. AFP

Claudio Bravo, markvörður Barcelona, er væntanlegur til Manchester á fimmtudaginn kemur, þar sem hann mun skrifa undir samning við Manchester City. Þetta kemur fram í frétt SkySports í dag.

Þessar fregnir ýta undir sögusagnir um brottför Joe Hart frá Manchester City, en samkvæmt breskum fjölmiðlum er Everton áhugasamt um krafta enska landsliðsmarkvarðarins.  

Greint var frá því í gær að Barcelona hefði komist að samkomulagi við Ajax um kaup á hollenska landsliðsmarkverðinum Jasper Cillessen og samningaviðræður um kaup og kjör stæðu yfir þessa dagana. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert