Drinkwater framlengir

Danny Drinkwater er einn þeirra leikmanna Leicester sem hafa slegið …
Danny Drinkwater er einn þeirra leikmanna Leicester sem hafa slegið í gegn. AFP

Miðjumaðurinn Danny Drinkwater hefur skrifað undir fimm ára framlengingu á samningi sínum hjá enska úrvalsdeildarliðinu Leicester City. Drinkwater var einn af lykilmönnum Leicester á síðasta tímabili þegar félagið vann Englandsmeistaratitilinn á ótrúlegan hátt. 

Drinkwater gekk í raðir Leicester frá Manchester United árið 2012. Fyrri samningurinn hefði runnið út 2018 og orðrómar höfðu vaknað um félagsskipti til Tottenham. 

Leicester hefur náð að framlengja samning flestra lykilleikmanna nema N'golo Kanté sem var keyptur af Chelsea í sumar. Riyad Mahrez, Jamie Vardy, Wes Morgan og Kasper Schmeichel hafa allir framlengt dvöl sína í Leicester-borg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert