Manchester United er sagt reiðubúið að losa sig við hollenska landsliðsmanninn Memphis Depay áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðamótin.
Depay gekk í raðir Manchester-liðsins frá PSV Eindhoven fyrir síðustu leiktíð. Miklar vonir voru bundnar við Hollendinginn, sem varð markakóngur í hollensku úrvalsdeildinni, en hann náði sér engan veginn á strik og hans hlutskipti hefur verið að verma varamannabekkinn mjög mikið.
Enska blaðið Daily Telegraph greinir frá því á vefsíðu sinni í kvöld að United sé tilbúið að láta Depay fara berist tilboð upp á 26 milljónir punda í hann en United greiddi þá upphæð fyrir hann fyrir rúmu ári þegar það fékk hann frá PSV.