„Manni líður ekkert allt of vel“

Jürgen Klopp var pirraður eftir jafnteflið gegn Tottenham í dag.
Jürgen Klopp var pirraður eftir jafnteflið gegn Tottenham í dag. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var hundfúll eftir jafntefli sinna manna gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, en lokatölur á White Hart Lane í dag urðu 1:1.

„Þegar þú tekur stig gegn Tottenham þá er það gott fyrir 99% liða en það var öðruvísi í dag. Við spiluðum mjög góðan leik gegn mjög sterku liði. Þetta (markið sem Tottenham skoraði) voru okkar fyrstu alvarlegu mistök, það varð að marki og það er eiginlega ekki sanngjarnt,“ sagði Jürgen Klopp, pirraður við BBC.

„Við sýndum að við getum verið góðir. Við spiluðum fótbolta og vörðumst vel. Manni líður ekkert allt of vel núna,“ sagði Jürgen Klopp.

Frétt mbl.is: Vinstri bakverðirnir sáu um mörkin á White Hart Lane

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert