Chadli að semja við WBA

Nacer Chadli.
Nacer Chadli. AFP

Belgíski landsliðsmaðurinn Cacer Chadli er á leið til WBA frá Tottenham en samkvæmt fjölmiðlum á Englandi hefur Tottenham tekið tilboði frá WBA í leikmanninn sem hljóðar upp á 13 milljónir punda.

Áætlað er að Chadli gangist undir læknisskoðun hjá WBA í dag en Tottenham fékk hann til liðs við sig frá hollenska liðinu Twente árið 2013 og greiddi þá fyrir hann 7 milljónir punda. Hann hefur skorað 25 mörk í 129 leikjum með Lundúnaliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert