Rojo ekki á förum frá United

Marcos Rojo er ekki á förum frá Manchester United.
Marcos Rojo er ekki á förum frá Manchester United. AFP

Marcos Rojo, leikmaður Manchester United á Englandi, er ekki á leið frá félaginu, en þetta staðfesti umboðsmaður hans við fjölmiðla í dag.

Argentínski miðvörðurinn kom til United frá Sporting Lisabon fyrir 14 milljónir punda fyrir tveimur árum en hann náði að festa sig í sessi undir stjórn Louis van Gaal. Hollenski þjálfarinn var látinn taka poka sinn eftir síðustu leiktíð og hefur Rojo fengið fáa sénsa undir stjórn Jose Mourinho, sem tók við liðinu.

United hefur fengið fjölmörg tilboð í varnarmanninn öfluga en umboðsmaður hans segir hann þó ekki á förum.

„Manchester United er búið að hafna tilboðum í Rojo frá Englandi og öðrum félögum utan Englands. Félagið vill halda honum,“ sagði Carlos Goncalves, umboðsmaður Rojo.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert