Hefðum getað spilað betur en það skiptir engu

Klopp var ánægður eftir leik kvöldsins.
Klopp var ánægður eftir leik kvöldsins. AFP

„Við vorum betri í kvöld og áttum skilið að vinna,“ sagði Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, eftir 3:0-sigur hans manna á Derby í 3. umferð enska deildabikarsins í kvöld.

Ragnar Klavan, Philippe Coutinho og Divock Origi skoruðu mörk Liverpool í kvöld gegn B-deildarliðinu.

„Við sköpuðum fullt af færum. Hefðum við getað leikið betur? Já. Skiptir það máli? Nei,“ bætti Klopp við en hann var fljótur að svara eigin spurningum.

„Við hefðum getað leikið betur í báðum hálfleikjum en að sjálfsögðu tekur maður 3:0-sigri fagnandi. Það er líka ánægjulegt að sigurinn kemur okkur ekki á óvart,“ sagði Klopp en hann sagði að góð lið ættu að vinna leiki jafnt heima sem að heiman:

„Það á ekki að vera mikill munur á því að leika heima eða að heiman þegar liðið er gott og okkar lið er gott. Við vorum mjög fagmannlegir í kvöld enda er þessi keppni mjög mikilvæg.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert