Manchester-slagur í deildabikarnum

Manchester City hafði betur í deildaleik Manchester-liðanna á Old Trafford.
Manchester City hafði betur í deildaleik Manchester-liðanna á Old Trafford. AFP

Manchester-liðin United og City mætast í stórleik 16-liða úrslita enska deildabikarsins í knattspyrnu en dregið var nú fyrir stundu.

Stutt er síðan City hafði betur í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni en þá var leikið á Old Trafford, en sú verður einnig raunin í fyrirhuguðum deildabikarleik.

Tottenham sækir Liverpool heim og West Ham tekur á móti Chelsea.

Leikirnir fara fram 25. og 26. október.

Dráttinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:

Manchester United - Manchester City
Liverpool - Tottenham
West Ham - Chelsea
Arsenal - Reading
Bristol City - Hull
Leeds - Norwich
Newcastle - Preston
Southampton - Sunderland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert