Danny Rose búinn að framlengja

Danny Rose í leik með Tottenham.
Danny Rose í leik með Tottenham. AFP

Enski bakvörðurinn Danny Rose hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham, en samningurinn gildir til næstu fimm ára.

Rose, sem er 26 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Tottenham á tímabilinu. Hann spilaði sömuleiðis sína fyrstu landsleiki fyrir A-lið Englands fyrr á árinu og var í liðinu sem fór á Evrópumótið í Frakklandi.

Rose, sem kom til Tottenham frá Leeds árið 2007, er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert