Manchester City staðfesti í dag að fyrirliðinn Vincent Kompany verði ekki með gegn Swansea þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á morgun.
Kompany meiddist einmitt í leik gegn Swansea á miðvikudag, þegar City hafði betur í viðureign þeirra í enska deildabikarnum. Þau mætast svo aftur í deildinni á sunnudag og Kompany kennir sér enn meins í nára eftir leikinn á miðvikudag.
„Það jákvæða er fyrir Kompany og fyrir City að ekki er um að ræða þau þrálátu kálfameiðsli sem hafa verið að hrjá hann allt frá síðasta tímabili,“ segir í tilkynningu frá félaginu.