Stan Collymore, fyrrum leikmaður Aston Villa, segir að ungir knattspyrnumenn á Englandi í dag séu mjólkaðir eins og kýr. Þeir séu einfaldlega eins og vara sem gangi kaupum og sölum.
Villa setti á dögunum miðjumanninn Jack Grealish í bann eftir að hann var of lengi úti að skemmta sér. Collymore veltir því fyrir sér hvar fyrirmyndirnar eru í dag.
„Ég hef áhyggjur. Hvar eru fyrirmyndirnar, og sterku karakterarnir í búningsklefanum? Knattspyrnumenn eru einfaldlega eins og hver önnur vara í dag; mjólkaðir eins og kýr,“ sagði Collymore.