„Þetta er alls ekki nógu gott“

Bilic fylgist með sínum mönnum í West Ham í leik …
Bilic fylgist með sínum mönnum í West Ham í leik á dögunum. AFP

Knattspyrnustjóri West Ham, Slaven Bilic, er svo einbeittur að vinnunni að hann hefur ekki gefið sér tíma til að finna nafn á dóttur sína sem fæddist fyrir nokkrum dögum.

„Eins og allir feður dýrka ég börnin mín. Ég sagði aðstoðarmönnum mínum að mér liði svolítið undarlega vegna þess að ég eignaðist stelpu fyrir nokkrum dögum en það eina sem ég hugsa um er fótbolti,“ sagði Bilic, en West Ham tekur á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Það er alls ekki nógu gott. Ég dýrka litlu stelpuna og myndi labba á hnjánum til Ástralíu fyrir hana ef ég þyrfti að gera það. Fólk hefur spurt mig hvað hún heitir og ég segi að það eigi eftir að koma í ljós,“ sagði Bilic og grínaðist með að nafnið yrði ákveðið þegar minna yrði að gera hjá West Ham:

„Kannski ákveð ég nafnið í næsta landsleikjahléi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert