„Strákarnir voru frábærir“

Liðsmenn Burnley fagna í kvöld.
Liðsmenn Burnley fagna í kvöld. AFP

„Strákarnir voru frábærir í kvöld,“ sagði Sean Dyche knattspyrnustjóri Burnley eftir 2:0 sigur sinna manna gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

„Ef þú heldur markinu hreinu þá áttu alltaf möguleika. Skipulagið var gott hjá liði mínu og menn börðust vel út um allan völl. Svona þurfum að gera í hverjum einasta leik. Við byrjuðum leikinn af krafti og það gaf okkur byr í seglin,“ sagði Dyche en eftir fjóra leiki án sigurs í deildinni fögnuðu hans menn góðum sigri í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert