Hver gæti tekið við af Allardyce?

Alan Pardew.
Alan Pardew. AFP

Enskir fjölmiðlar velta því nú fyrir sér hver geti orðið næsti landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu en afar líklegt þykir að Sam Allardyce verði látinn taka pokann sinn eftir að breska blaðið Telegraph upplýsti að hann hafi veitt ráðlegg­ing­ar um hvernig mætti fara á svig við regl­ur knattspyrnusam­bands­ins.

Helstu nöfn sem hafa komið í enskum fjölmiðlum sem hugsanlegur eftirmaður Allardyce eru:

Alan Pardew, Steve Bruce, Eddie Howe, Glenn Hoddle, Gareth Southgate, Jürgen Klinsmann og Gary Neville.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert