„Urðum að vinna þennan leik

Mauricio Pochettino, hinn argentíski þjálfari Tottenham.
Mauricio Pochettino, hinn argentíski þjálfari Tottenham. AFP

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham var afar ánægður með 1:0 sigurinn á CSKA Mosvku í kvöld í Meistaradeild Evrópu en þetta var fyrsti sigur liðsins í keppninni á tímabilinu.

„Þetta var mjög mikilvægur sigur. Hann var mikilvægur til þess að halda okkur í kapphlaupinu um að komast í næstu umferð Meistaradeildarinnar,“ sagði Pochettino eftir leikinn en Son Heung-min skoraði eina mark leiksins en markið var hans fimmta í fimm leikjum hjá Tottenham.

„Við urðum að vinna þennan leik. Við erum í 2. sæti í riðlinum en núna er þetta allt opið,“ sagði Pochettino.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert