Klopp var fljótur að sannfæra mig

Georginio Wijnaldum í leik með Liverpool gegn Leicester City fyrr …
Georginio Wijnaldum í leik með Liverpool gegn Leicester City fyrr á leiktíðinni. AFP

Georginio Wijnaldum leikmaður Liverpool, segir í samtali við Skysports að það hafi einungis þurfti einn fund með Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra félagsins, til þess að sannfæra hann um að ganga til liðs við félagið í sumar. 

Wijnaldum gekk til liðs við Liverpool frá Newcastle United á 25 milljónir punda eftir að síðarnefnda félagið féll úr ensku úrvalsdeildinnni í knattsprnu karla síðasta vor. 

„Ég fundaði einu sinni með Klopp og hann náði strax að sannfæra mig um að spila fyrir Liverpool. Ég fékk það strax á tilfinninguna að hann hefði trú á mér og ég gæti bætt mig undir hans stjórn. Mér fannst Klopp rétti aðilinn til þess að þróa mig í rétta átt,“ sagði Wijnaldum um vistaskiptin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert