Costa er markahæstur

Diego Costa fagnar marki gegn Leicester á laugardaginn.
Diego Costa fagnar marki gegn Leicester á laugardaginn. AFP

Diego Costa framherji Chelsea er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en 8. umferðinni lýkur í kvöld með stórleik Liverpool og Manchester United á Anfield.

Costa hefur verið öflugur í liði Chelsea á leiktíðinni en Spánverjinn skapstóri hefur skorað 7 mörk í fyrstu átta leikjum Lundúnaliðsins á tímabilinu.

Þessir eru markahæstir:

7 - Diego Costa. Chelsea
6 - Lomelu Lukaku, Everton
5 - Sergio Agüero, Man. City
5 - Mihail Antonio, West Ham
5 - Theo Walcott, Arsenal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert