Aron maður leiksins á Sky

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sem leikur með Cardiff í ensku B-deildinni var valinn maður leiksins hjá Sky í 2:1 sigri þess á Nottingham Forest í kvöld. 

Aron Einar skoraði fyrra mark Cardiff en hefði liðið ekki unnið leikinn í dag væri það í fallsæti. Aron Einar átti 48 snertingar, 23 sendingar; fór í 8 einvígi og vann 5 af þeim, átti eitt skot sem fór að sjálfsögðu í netið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert