BBC birti ummæli Eiðs

Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári Guðjohnsen mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

BBC birti á vef sínum í dag Twitter-færslu Eiðs Smára Guðjohnsens um Jose Mourinho og Chelsea. 

Eins og fram kom á mbl.is skaut Eiður á Jose Mourinho á Twitter vegna stöðunnar sem upp var kominn í leik Chelsea og Manchester United eftir að Chelsea komst í 4:0. 

 Jose Mourinho stjórnar nú Manchester United sem kunnugt en Eiður lék undir hans stjórn hjá Chelsea fyrir um áratug síðan og varð þá tvívegis enskur meistari. 

Blaðamönnum BBC þótti greinilega fast skot hjá Eiði og birtu Twitter-færsluna með fyrirsögninni „Ouch“

Færslan á BBC í dag.
Færslan á BBC í dag. BBC
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert