Eiður Smári skýtur fast á Mourinho

Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eiður Smári Guðjohnsen sendi José Mourinho, knattspyrnustjóra Manchester United, kaldhæðnislega kveðju á Twitter-síðu sinni í dag.

Tilefnið var endurkoma Mourinho á Stamford Bridge, heimavöll Chelsea, þar sem hann gerði áður garðinn frægan. Þegar þetta er skrifað er staðan 4:0 fyrir Chelsea og skammt eftir, og Eiður notaði tækifærið og skaut á þann Portúgalska.

„Jose veit ennþá hvernig á að ná fram því besta úr Chelsea-liðinu,“ skrifar Eiður og hefur fengið mikil viðbrögð við færslunni.

BBC birti ummæli Eiðs

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert