Rooney ekki í hópnum gegn Chelsea

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Það er enginn Wayne Rooney í leikmannahópi Manchester United sem mætir Chelsea í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu klukkan 15.

Hann er talinn glíma við meiðsli, en Jesse Lingard og Marcus Rashford eru með Zlatan Ibrahimovic í sókn United. Hjá Chelsea er fyrirliðinn John Terry á bekknum eftir að hafa glímt við meiðsli á ökkla. Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Leikurinn er í beinni textalýsingu á mbl.is sem opna má HÉR.

Chelsea: Courtois; Azpilicueta, David Luiz, Cahill; Moses, Kante, Matic, Alonso; Pedro, Hazard, Costa.

Man Utd: De Gea; Valencia, Smalling, Bailly, Blind; Fellaini, Herrera; Rashford, Pogba, Lingard; Ibrahimovic.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert