Arsenal vill halda Wenger

Arsene Wenger.
Arsene Wenger. AFP

Arsenal vonast eftir því að Arsene Wenger verði áfram við stjórnvölinn eftir þetta tímabil en segir ekkert liggja á að að ræða við hann um nýjan samning.

Wenger fagnaði á dögunum 20 ára starfsafmæli hjá Lundúnaliðinu en núgildandi samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

„Við vitum öll um frábært framlag Arsene til félagsins á síðustu 20 árum og við erum fullvissir um getu hans að taka félagið áfram. Við munum setjast niður og ræða um framtíðina á viðeigandi tíma en áhersla okkar er að liðið haldi áfram því góða gengi sem hefur verið og berjist um titlana,“ segir Chips Keswick, stjórnarformaður Arsenal.

Eftir níu umferðir er Arsenal á toppnum ásamt Liverpool og Manchester City, en öll hafa liðin 20 stig.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert