Manchester-liðin mætast annað kvöld

Jose Mourinho og Pep Guardiola á hliðarlínunni.
Jose Mourinho og Pep Guardiola á hliðarlínunni. AFP

José Mourinho og Pep Guardiola leiða saman hesta sína í annað sinn á leiktíðinni annað kvöld þegar Manchester United og Manchester City eigast við í ensku deildabikarkeppninni á Old Trafford.

Liðin áttust við í deildinni á sama stað í síðasta mánuði þar sem Manchester City hafði betur, 2:1.

Bæði Manchester-liðin mæta særð til leiks. Manchester United eftir að hafa fengið rassskell á móti Chelsea á Stamford Bridge í fyrradag, 4:0, og Manchester City er án sigurs í fimm leikjum í röð eftir að hafa unnið fyrstu tíu leiki sína undir stjórn Guardiola.

Líklegt er að þeir Mourinho og Guardiola stokki eitthvað upp í liðum sínum en bæði verða þau í eldlínunni í deildinni á laugardaginn. United tekur þá á móti Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley en City sækir WBA heim.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert