Moyes fær á sig kæru

David Moyes rekinn upp í stúku af dómaranum Chris Kavanagh.
David Moyes rekinn upp í stúku af dómaranum Chris Kavanagh. AFP

David Moyes, knattspyrnustjóri botnliðs Sunderland í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið á sig kæru frá enska knattspyrnusambandinu.

Moyes var sendur upp í stúku í ósigri Sunderland gegn Southampton í deildabikarnum í gærkvöldi og hefur fengið kæru vegna óíþróttamannslegrar framkomu. Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að þriggja leikja bann.

Það væri ekki á bætandi fyrir Sunderland, sem er neðst í deildinni með aðeins tvö stig eftir níu umferðir en Moyes tók við liðinu í sumar. Hann hefur fram í byrjun næstu viku til þess að svara kærunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert