Spænski knattspyrnumaðurinn Santi Cazorla leikmaður Arsenal þarf að gangast undir aðgerð vegna meiðsla í hásin og svo getur farið að hann spili ekkert meira með Lundúnaliðinu á tímabilinu.
Staðfest er á vef Arsenal að Cazorla gangist undir aðgerðina í Svíþjóð í næstu viku en hann hefur verið frá keppni vegna meiðslanna frá því eftir leikinn við búlgarska liðið Ludogorets í Meistaradeildinni sem fram fór 19. október.