Harry Kane framherji Tottenham skrifaði í morgun undir nýjan samning við Lundúnafélagið og er nú samningsbundinn því til ársins 2022.
Kane, sem er 23 ára gamall, varð markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Hann hóf sinn feril með unglingaliði Tottenham árið 2004 en sló fyrst í gegn með aðalliði félagsins fyrir tveimur árum.
Kane fékk sitt fyrsta tækifæri með enska landsliðinu í fyrra og hefur skorað 5 mörk í 17 leikjum með því.