Rooney verður áfram fyrirliði

Wayne Rooney.
Wayne Rooney. AFP

Gareth Southgate nýráðinn þjálfari enska landsliðsins í knattspyrnu sagði á sínum fyrsta fréttamannafundi eftir fastráðninguna í gær að Wayne Rooney verði áfram fyrirliðsins liðsins.

„Wayne Rooney er fyrirliði enska landsliðsins. Ég sagði það þegar ég var ráðinn tímabundið í starfið. Ég hef aðeins valið hann í byrjunarliðið í tveimur af þeim fjórum leikjum sem liðið hefur spilað undir minni stjórn. Það er ekki þannig að Wayne reikni með að spila alla leiki. Ég tel það mikilvægt að við þróum fleiri leiðtoga í þessum hópi og gefum öðrum tækifæri til fara fyrir liðinu,“ sagði Southgate, sem í gær var ráðinn þjálfari enska landsliðsins til næstu fjögurra ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert