Enn semur Tottenham við lykilmenn

Jan Vertonghen.
Jan Vertonghen. AFP

Tottenham heldur áfram að gera nýja samninga við lykilmenn sína en í morgun greindi félagið frá því að belgíski varnarmaðurinn Jan Vertonghen hafi skrifað undir nýjan samning.

Vertonghen, sem er 29 ára gamall, skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2019 en hann kom til Tottenham frá Ajax í Hollandi árið 2012 og hefur átt góðu gengi að fagna með Lundúnaliðinu.

Áður höfðu þeir Dele Alli, Eric Dier, Danny Rose, Kyle Walker og Harry Kane framlengt samninga sína við Tottenham.

<br/><br/>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert