„Getum unnið Meistaradeildina“

Mesut Özil í leik með Arsenal.
Mesut Özil í leik með Arsenal. AFP

Mesut Özil, leikmaður Arsenal á Englandi, telur liðið hafa alla burði til þess að vinna Meistaradeild Evrópu.

Arsenal hefur ekki komist lengra en í 16 liða úrslit Meistaradeildarinnar síðustu sex ár en liðið hefur fengið afar erfiða andstæðinga þar á borð við Barcelona og Bayern München.

Özil telur að liðið hafi verið óheppið með andstæðinga en nú hafi liðið alla burði til þess að berjast um bikarinn.

„Ég held að við höfum ekki haft heppnina með okkur. Við höfum verið óheppnir með andstæðinga í 16 liða úrslitum og mætt liðum á borð við Barcelona og Bayern München,“ sagði Özil við Marca.

„Ég vonast til þess að vinna Meistaradeildina með Arsenal og ég tel okkur vera með lið sem getur unnið hana,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert