Mourinho vill fá stjörnu frá Barcelona

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Ensku blöðin greina frá því í dag að José Mourinho knattspyrnustjóri Manchester United ætli reyna að fá króatíska miðjumanninn Ivan Rakitic til liðs við sig í janúarglugganum.

Verðmiðinn á Rakitic er sagður vera 35 milljónir pund en sú upphæð jafngildir tæpum 5 milljörðum íslenskra króna.

Rakitic er 28 ára gamall sem gekk í raðir Barcelona frá Sevilla árið 2014. Hann hefur komið við sögu í 79 deildarleikjunum með Katalóníuliðinu og hefur í þeim skorað 14 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert