Gylfi og félagar fengu lágar einkunnir

Frá viðureign Tottenham og Swansea í dag.
Frá viðureign Tottenham og Swansea í dag. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson og samherjar hans í Swansea fengu ekki háar einkunnir fyrir frammistöðuna gegn Tottenham á White Hart Lane í dag.

Gylfi mátti sætta sig við 5:0 tap gegn sínum gömlu félögum en Swansea sá aldrei til sólar og Tottenham hefði hæglega geta skorað 10 mörk í leiknum.

Gylfi fékk 5 í einkunn hjá netmiðlinum walesonline.com og hjá goal.com fékk Gylfi 4 og var hæstur af leikmönnum Swansea ásamt Lukasz Fabianski markverði og Jack Cork.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert