„Kemur manni sífellt á óvart“

Alexis Sánchez fagnar einu af þremur mörkum sínum.
Alexis Sánchez fagnar einu af þremur mörkum sínum. AFP

Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal gat leyft sér að brosa breitt eftir stórsigur sinna manna gegn West Ham á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Arsenal landaði 5:1 sigri og er í öðru sæti, þremur stigum á eftir Chelsea sem vann 3:1 útsigur á móti Manchester City í dag.

„Þetta var frábær frammistaða há okkur og úrslitin eftir því. Við sköpuðum okkur fullt af færum og skoruðum fimm mörk. Sánzhez sýndi enn og aftur hvers megnugur hann er. Hann er baráttuglaður og klassa leikmaður í alla staði. Þú sérð ekki marga leikmenn eins og hann og hann er sífellt að koma manni á óvart,“ sagði Wenger eftir leikinn en Sílemaðurinn Sánchez skoraði þrennu í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert