Zlatan Ibrahimovic framherji Manchester United er vongóður um að sleppa við refsingu en hann lenti í rimmu við Seamus Coleman bakvörð Everton í leik liðanna á Goodsion Park í dag.
Zlatan sparkaði í höfuð Coleman en atvikið fór fram hjá dómara leiksins en aganefnd enska knattspyrnusambandsins gæti tekið málið til skoðunar.
„Menn tókust vel á í þessum leik og leikmenn Everton voru harðir í horn að taka. Ég heyrði frá einum lýsanda leiksins að ég hafi sparkað viljandi í höfuð leikmanns. Ég veit hvernig á að sparka í menn og svæfa þá. Þetta er það eina sem ég hef að segja,“ sagði Svíinn sem skoraði mark United í 1:1 jafnteflinu gegn Everton.