Klopp ánægður með ákvörðun Matip

Joel Matip mun leika með Liverpool í janúar í stað …
Joel Matip mun leika með Liverpool í janúar í stað þess að fara á Afríkumótið. AFP

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, staðfesti það við fréttamenn í dag að kamerúnski miðvörðurinn Joel Matip myndi ekki fara á Afríkumótið í janúar heldur spila með Liverpool.

Matip hefur gegnt mikilvægu hlutverki í liði Liverpool og Klopp er ánægður með ákvörðun kappans.

„Við ræddum um þetta fyrir nokkrum vikum svo ég var ekki hissa. Ég er ánægður en leikmennirnir verða að taka sínar eigin ákvarðanir í þessum efnum. Fyrir Joel er þetta öðruvísi því hann ólst upp í Þýskalandi. Hann tók ákvörðunina sjálfur og þetta er gott fyrir okkur,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert