Mourinho vill fleiri mörk frá Rooney

Wayne Rooney fagnar hér ásamt Anthony Martial.
Wayne Rooney fagnar hér ásamt Anthony Martial. AFP

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United á Englandi, vill að Wayne Rooney, fyrirliði félagsins, skori fleiri mörk. Hann hefur aðeins skorað þrjú mörk í tuttugu leikjum.

Zlatan Ibrahimovic kom til félagsins í sumar á frjálsri sölu eftir að hafa leikið fyrir Paris Saint-Germain síðustu ár en hann hefur gert átta af nítján mörkum United í deildinni.

Mourinho vill að Rooney og aðrir framherjar liðsins leggi meira til og aðstoði Zlatan við markaskorun í deildinni.

„Rooney skorar vanalega meira sem sóknarmaður. Hann hefur skorað nokkur mörk en við búumst við fleiri mörkum frá honum. Við búumst við fleiri mörkum frá öllum í liðinu en Zlatan hefur haldið því uppi, sem er kannski ekkert skrítið þar sem hann er fremsti maður,“ sagði Mourinho.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert