Fyrsta mark Lucas fyrir Liverpool síðan 2010

Lucas Leiva kom til Liverpool árið 2007.
Lucas Leiva kom til Liverpool árið 2007. AFP

Brasilíski miðjumaðurinn Lucas Leiva er búinn að koma Liverpool yfir gegn Plymouth, 1:0, en leikur þeirra í 3. umferð ensku FA-bikarkeppninnar í knattspyrnu stendur yfir.

Þetta var fyrsta markið sem Lucas skorar síðan 16. september 2010, samkvæmt tölfræðiveitunni Opta. Þá skoraði hann gegn Steaua Búkarest í Evrópudeildinni. Síðan eru liðnir 2.316 dagar, hvorki meira né minna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert