Liverpool dugði eitt mark gegn Plymouth

Jake Jervis gegn Alberto Moreno í leik Plymouth og Liverpool …
Jake Jervis gegn Alberto Moreno í leik Plymouth og Liverpool í kvöld. AFP

Liverpool er komið áfram í 4. umferð enska FA-bikarsins í knattspyrnu eftir 1:0 sigur á Plymouth sem leikur í D-deildinni.

Liðin gerðu markalaust jafntefli fyrr í þessum mánuði og þurftu því að mætast á ný. Lucas skoraði sigurmarkið strax á 8. mínútu – hans fyrsta síðan árið 2010.

Þá komst Southampton sömuleiðis áfram eftir 1:0-sigur á Norwich, þar sem Shane Long skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Fyrri leikurinn fór 2:2 á heimavelli Norwich.

Að lokum komst svo Newcastle áfram í 4. umferðina með sigri á Birmingham, 3:1. Matt Ritchie skoraði tvö mörk og Yohan Gouffran eitt, en David Cotterill skoraði mark Birmingham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert