Fyrirliði Arsenal framlengdi

Per Mertesacker er byrjaður að æfa aftur eftir hnémeiðsli sín …
Per Mertesacker er byrjaður að æfa aftur eftir hnémeiðsli sín en getur ekki byrjað að spila með Arsenal alveg strax. AFP

Þýski miðvörðurinn Per Mertesacker hefur framlengt samning sinn við Arsenal um eitt ár en samningurinn hefði annars runnið út næsta sumar.

Mertesacker, sem er 32 ára og fyrirliði Arsenal, er að jafna sig af hnémeiðslum en hann hefur ekkert getað spilað vegna þeirra í vetur.

„Hann er byrjaður að æfa aftur, en ekki með liðinu. Ég held að hann eigi enn nokkrar vikur eftir,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert