Brasilíumaðurinn Gabriel Jesus má spila með Manchester City þegar liðið mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
Jesus, sem er 19 ára sóknarmaður, er loksins orðinn löglegur með City en félagið keypti hann frá Palmeiras í Brasilíu síðasta sumar. Jesus var áfram hjá Palmeiras að láni og varð brasilískur meistari með liðinu í nóvember.
Jesus kom til Manchester-borgar þann 3. janúar en það var ekki fyrr en í dag sem hann fékk leikheimild hjá enska knattspyrnusambandinu.
City hafði betur í samkeppni við nokkur af stórliðum Evrópu í baráttu um Jesus, sem hefur leikið sex landsleiki fyrir Brasilíu og skorað fimm mörk. City mun hafa borgað 27 milljónir punda fyrir kappann.