Depay orðinn leikmaður Lyon

Memphis Depay er orðinn leikmaður Lyon.
Memphis Depay er orðinn leikmaður Lyon. Ljósmynd/Twitter-síða Lyon

Hollenski knattspyrnumaðurinn Memphis Depay er orðinn leikmaður Lyon í Frakklandi, en Lyon keypti hann frá Manchester United.

BBC segir kaupverðið nema um 16 milljónum punda, en Depay var keyptur til United frá PSV Eindhoven sumarið 2015 fyrir 31 milljón punda.

Depay, sem er 22 ára, skoraði sjö mörk í 53 leikjum fyrir United.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert