West Ham kaupir fyrirliða Southampton

José Fonte í baráttu við Everton-manninn Dominic Calvert-Lewin.
José Fonte í baráttu við Everton-manninn Dominic Calvert-Lewin. AFP

José Fonte, fyrirliði Southampton, hefur fengið ósk sína uppfyllta og hefur verið seldur frá félaginu. Hann skrifaði í dag undir tveggja og hálfs árs samning við West Ham.

Hinn 33 ára gamli varnarmaður kostaði West Ham átta milljónir punda, en hann þjónaði Southampton í sjö ár. Hann á að baki 20 landsleiki fyrir Portúgal.

Þá hefur Saido Berahino verið seldur frá West Brom, en hann hefur ekki verið inni í myndinni hjá liðinu og verið ósáttur. Stoke reiddi fram 12 milljónir punda fyrir hinn 23 ára gamla sóknarmann og samdi við hann til fimm og hálfs árs.

Saido Berahino.
Saido Berahino. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert